Heim

Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?

Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"


 


14. desember 2011 | 17:10 /
Rafmagnshitarar

Þegar kemur að því að hita upp sólpalla í heimahúsum og á útisvæði veitingastaða eru rafmagnshitarar eða svokallaðir geislahitarar hentugir kostir.

Geislahitari/Rafmagnshitari hitar upp það svæði sem geislinn lendir á og hitar ekki upp loftið eins og gashitari gerir. Huga þarf vel að staðsetningu lampanna svo hann nýtist sem best.

Kostir þess að vera með rafmagnshitara er að þeir eru hljóðlausir, fljótir að hitna, ódýrir í rekstir, öryggir í notkun auk þess sem maður sleppur við meðhöndlun gaskúta.

verð: 54.900,-

foto_heliosa11foto_heliosa11_ombrellone
segl1111_skjaauglysing_2


08. júlí 2011 | 08:14 /
BÍLATJÖLDIN KOMIN
seglagerdin-bilatjald

10. mars 2011 | 13:36 /
Alexander Petersson

"Eins og flestir landsmenn vita var Alexander Petersson valinn íþróttamaður Íslands árið 2010 en það sem færri vita er að hann vann hjá okkur í Seglagerðinni frá því að hann koma til landsins og þangað til að hann fór út í atvinnumennskuna. Og var það því mikið gleðiefni þegar Alex bauð okkur í Seglagerðinni að geyma bikarinn góða fyrir sig. Verður bikarinn því til sýnis hjá okkur allt þetta ár og aldrei að vita nema við fáum hann til eignar en þá þarf Alex að vinna hann í nokkur ár til viðbótar.
Áfram Alex!!! 
lexi 


09. apríl 2010 | 11:30 /
Við hjá Seglagerðinni réðumst í það verkefni

að hanna neyðartjöld eftir jarðaskjálftann í Haiti í samstarfi við Rauða Krossinn, og á sama tíma höfðu einstaklingar úr humanistafélaginu, þeir Þorkell Pálsson og Pétur Guðjónsson, samband við okkur varðandi vöntun á tjöldum til að hýsa munaðarlaus börn í Haiti.
Að sjálfsögðu brugðumst við og fórum í að hanna og sauma tjöld sem áttu að hýsa 10 börn hvert og buðumst við að sjálfsögðu til að fara á okkar kosnað til Haiti og tjalda þessum tjöldum fyrir börnin.
Ferðin var stórbrotinn, svo ekki sé minna sagt, en tjöldin fóru upp við mikla gleði þerra 50 barna sem biðu eftir húsaskjóli.

Hér fyrir neðan geti þið séð nokkrar af þeim myndum sem Björgvin Barðdal og Jónas Björnson tóku í ferð sinni til Haíti.



Seglagerðin Ægir - Eyjarslóð 5, 101 Reykjavík - Sími: 511 2200 - Fax: 511 2211 - seglagerdin@seglagerdin.is

Seglagerðin Ægir áskilur sér rétt til að breyta öllum verðum og skilmálum án fyrirvara