Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?
Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"
Í fjölmörg ár hefur Seglagerðin saumað tjöld, allt frá 3 manna Ægistjöldum uppí risatjöld á borð við 1.500 fermetra vöruskemmu fyrir Eimskip. Veislutjöld, sölutjöld, bílatjöld og fortjöld eru dæmi um tjöld sem framleidd eru á verkstæði og saumastofu Seglagerðarinnar. Gott samstarf við hönnuðina Grétar Guðmundsson og Einar Þorstein Ásgeirsson hefur skilað ótal mismunandi tjöldum, sérhönnuð fyrir kaupandann.
Léttari málmar, sterkari dúkar og frjótt hugmyndarflug hafa opnað nýja gátt í úrlausnum fyrir einstaklinga, samtök og fyrirtæki. Tjöld eru oftar en ekki hentugur, ódýr og þægilegur kostur sem bíður uppá fjölbreytileika og áreiðanleika.
Hér eru nokkur sýnishorn um tjaldaframleiðslu Seglagerðarinnar. Starfsmenn verkstæðisins veita nánari upplýsingar, aðstoða við útfærslu og hönnun ásamt því að setja tjöldin upp sé þess óskað.
Sjá einnig Tjaldaleigu



