Heim

Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?

Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"


 


Þjónustuverkstæði

Alhliða viðgerðar- og viðhaldsþjónusta

Hjá Þjónustuverkstæði að Eyjarslóð 5 færð þú þjónustu við allt sem tengist viðgerðum, aukabúnaði og viðhaldi á vagninum, fellihýsinu og húsbílnum þínum.

Þjónustuverkstæði býður uppá örugga og fljótlega þjónustu fyrir allar tegundir vagna og fellihýsa.

Seglagerðin Ægir - Þjónustuverkstæði
Eyjarslóð 5
sími: 511-2200
tölvupóstur:
gunnar@seglagerdin.is

Opnunartími: 9.00 - 18.00 


Þjónustuverkstæðið sér meðal annars um

Skoðun á vagninum:

Í dag er skoðun á fellihýsum og tjaldvögnum ekki lögbundin en reynslan sýnir að reglubundin yfirferð er mjög nauðsynleg. Starfsmenn þjónustuverkstæðis fara yfir alla hluti vagnsins og tryggja að þú njótir fyllsta öryggis í ferðalaginu.

Þegar vagninn er skoðaður er farið yfir allar gaslagnir og gastæki, undirvagninn skoðaður og smurður, rafmagnið athugað sem og bremsubúnaðurinn. Allar legur og lyftibúnaður er yfirfarinn

Viðgerð og breytingar á rafmagni:

Þjónustuverkstæðið sér um alla þjónustu varðandi rafmagnskerfið í vögnum og húsbílum. Uppsetning sólarorkuspegla, ísskápa, aukaljósa og hitamiðstöðva eru dæmi um starfsemi þjónustuverkstæðis. Einnig er yfirferð á ljósabúnaði, ísetning rafgeyma og hleðsla í bíl og vagna í boði.

Gasþjónustan:

Ef þú átt í einhverjum erfiðleikum með gasið, ert með bilaðan búnað eða hefur áhuga á að bæta við þægindin á ferðalaginu er rétt að líta við í þjónustuverkstæðið.

Aukabúnaður og breytingar:

Ef þú vilt betrumbæta vagninn og auka enn við notagildi hans þá aðstoða starfsmenn þjónustuverkstæðis þig. Upphækkanir og auka rafgeymar eru meðal vinsælla breytinga hjá tjaldvagna- og fellihýsaeigendum.



Seglagerðin Ægir - Eyjarslóð 5, 101 Reykjavík - Sími: 511 2200 - Fax: 511 2211 - seglagerdin@seglagerdin.is

Seglagerðin Ægir áskilur sér rétt til að breyta öllum verðum og skilmálum án fyrirvara