Heim

Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?

Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"




VEISLUTJALDIРStærsta tjaldið sem Seglagerðin Ægir býður til leigu er hið svokallaða Veislutjald. Veislutjaldið er afar glæsilegt sem hentar afskaplega vel fyrir fjölmennar veilsur og samkomur. Tjaldið hefur verið sérstaklega vinsælt fyrir brúðkaup og stórafmæli en einnig hafa ýmis fyrirtæki nýtt sér tjaldið til að auka rými sitt fyrir til dæmis viðskiptasýningar, tímabundinn lager, útsölur og jafnvel hefur tjaldið verið notað sem bílastæðahús.
Veislutjaldið er bjart og þægilegt sem og að bogadregnir gluggarnir skapa hátíðlegt yfirbragð. Grindin sem heldur tjaldinu uppi er fínleg og snyrtileg úr ljósu áli. Mögulegt er að hafa marga inngaga og velja þeim stað hvar sem er. Venjulegur inngangur er 80cm breiður en að auki er hægt að fá inngang sem er 270cm.


  PARTÝ-TJALDIÐ er einstaklega auðvelt í uppsetningu og þægilegt í flutningi. Sterk álgrind sem auðvelt er að setja saman gerir tjaldið afar stöðugt. Tjaldið er bjart og skemmtilegt enda gluggar allan hringinn. Mögulegt er að hafa inngang hvar sem er og jafnvel má sleppa öllum gluggunum og stendur þá þakið eitt og sér.

 
ÆGISTJALDIÐ er afar meðfærilegt í flutningi og uppsetning þess er fljótleg og þægileg. Tjaldið er létt og fyrirferðalítið samanbrotið enda vinsælt fyrir ættarmót og önnur tilefni sem eru utan borgarmarkanna.


Seglagerðin Ægir - Eyjarslóð 5, 101 Reykjavík - Sími: 511 2200 - Fax: 511 2211 - seglagerdin@seglagerdin.is

Seglagerðin Ægir áskilur sér rétt til að breyta öllum verðum og skilmálum án fyrirvara