Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?
Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"
Ægistjaldið er afar meðfærilegt í flutningi og uppsetning þess er fljótleg og þægileg. Tjaldið er létt og fyrirferðalítið samanbrotið enda vinsælt fyrir ættarmót og önnur tilefni sem eru utan borgarmarkanna. Þakið getur staðið án hliða og staðsetning inngangs stjórnast af uppsetningu hliðanna. 

Ægistjaldið er 54 fermetrar. Þakið er gult en hliðar tjaldsins eru bláar og með stórum gluggum. Tjaldið stenst vel íslenska veðráttu enda stagað allan hringinn en verður þar af leiðandi aðeins tjaldað á grasi.
Vegghæð Ægistjaldsins er 200 cm en fyrir miðju er tjaldið 300 cm.
| stærð | fjöldi | þyngd | dagleiga | helgarleiga | |
| Ægistjaldið | 6m x 9m | 60-90 manns | 80 kg. | 17.500 kr. | 25.000 kr. |