Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?
Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"
-
Í upphafi er öllum hornstykkjunum raðað upp og þau tengd saman með súlum.
-
Lítilli súlu með hólk á öðrum endanum er sveigt uppá miðsúluna á sitthvorum endanum. Inní þessa súlu fer seinna löpp (sjá mynd)
-
Efsti hluti grindarinnar tilbúinn.
-
Því næst er dreift úr þakinu og það dregið yfir efsta hluta grindarinnar.
-
Mikilvægt er að þakið sé sett yfir áður en grindin er reyst.
-
Þakinu er komið vel fyrir og dúkurinn strekktur niður fyrir öll hornin svo grindin haldist saman.
-
Því næst er löppunum dreift, ein við hvert hornstykki.
-
Tjaldið er síðan reyst upp og löppunum stungið í hornstykkin.
-
Krókum sem eru neðst á dúknum er krækt í lykkju á löppunum.
-
Öllum löppunum er komið fyrir öðru megin og síðan er tjaldið reyst upp hinum megin og löppum komið fyrir þar.
-
Síðustu tvær lappirnar stingast inní litlu súlurnar á sitthvorum enda tjaldsins.
-
Gluggarnir eru þræddir í þegar tjaldið hefur verið reyst. Byrja skal uppi í vinstra horninu og vinna sig hringinn.
-
Fyrstu tveim lykkjunum er stungið í gegnum sitthvorn kósan á þakinu og síðan er seinni lykkjunni stungið í gegnum fyrri lykkjuna.Síðan stingst næsta lykkja í gegnum næsta kósa og svo gegnum lykkjuna á undan.
-
Farið er eins að allan hringinn. Í lokin er lítilli lykkju stungið í gegnum síðasta kósan, síðustu stóru lykkjuna og loks fest utan um þar til gert plaststykki sem er við síðasta kósann.
-
Að lokum er tjaldið stagað niður allan hringinn og þá getur veislan hafist.












