Heim

Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?

Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"




Stærsta tjaldið sem Seglagerðin Ægir býður til leigu er hið svokallaða Veislutjald. Veislutjaldið er afar glæsilegt sem hentar afskaplega vel fyrir fjölmennar veislur og samkomur.

Veislutjaldið hefur verið sérstaklega vinsælt fyrir brúðkaup og stórafmæli en einnig hafa ýmis fyrirtæki nýtt sér tjaldið til að auka við rými sitt fyrir til dæmis viðskiptasýningar, tímabundinn lager, útsölur og jafnvel hefur tjaldið verið notað sem bílastæðahús.Veislutjaldið er bjart og þægilegt sem og að bogadregnir gluggarnir skapa hátíðlegt yfirbragð.

  image001image003image004image005image006image007image008image002


 
 
 
01620111105-_mg_8107 

Grindin sem heldur tjaldinu uppi er fínleg og snyrtileg úr ljósu áli. Mögulegt er að hafa marga innganga og velja þeim stað hvar sem er.
Venjulegur inngangur er 80 cm breiður en að auki er hægt að fá inngang sem er 270 cm.
Vegghæð veislutjaldsins er 220-240 cm en fyrir miðju er tjaldið 4 metrar. Tjaldið er 12 metrar á breidd en lengdin er breytanleg, allt eftir hve margar einingar af grindinni eru settar upp. Stærðin getur því verið allt frá 72 m2 og uppúr, hver eining er 3 metra löng.
Veislutjaldið er aðeins leigt með uppsetningu, ýmist með tveimur mönnum og þá útvegar leigjandinn aðstoðarmenn eða með fullkomnri uppsetningu.
Tjaldið er á kerru svo flutningur þess er mjög þægilegur.

Stærð Veislutjaldsins
72 m2 (12m x 6m) 108 m2 (12m x 9m) 144 m2 (12m x 12m)
180 m2 (12m x 15m) 216 m2 (12m x 18m) 252 m2 (12m x 21m)
288 m2 (12m x 24m) 324 m2 (12m x 27m) 360 m2 (12m x 30m)
396 m2 (12m x 33m) 432 m2 (12m x 36m) 468 m2 (12m x 39m)


Seglagerðin Ægir - Eyjarslóð 5, 101 Reykjavík - Sími: 511 2200 - Fax: 511 2211 - seglagerdin@seglagerdin.is

Seglagerðin Ægir áskilur sér rétt til að breyta öllum verðum og skilmálum án fyrirvara