Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?
Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"
Tjaldvagnaland er nú opið Mánudaga til föstudaga 10:00 - 18:00
Seglagerðin Ægir hefur flutt inn og selt tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og pallhýsi undir merkjum Tjaldvagnalands frá árinu 1988. Í apríl 2005 opnaði Tjaldvagnaland 500 fermetra stóran sýningarsal að Eyjarslóð 5 þar sem vagnar og bílar eru til sýnis. Jafnframt hefur úrvalið fyrir kröfuhart ferðafólk stóraukist sem fá nú allt frá tjaldvögnum uppí húsbíla ásamt öllum nauðsynlegum aukabúnaði. Við hlið Tjaldvagnalands er Þjónustuland þar sem boðið er uppá alla alhliða viðgerðarþjónustu fyrir tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla. Einnig er saumastofan í sama húsi þar sem fortjöld, svefntjöld og grjótgrindur eru framleiddar enda hefur styrkur Seglagerðarinnar ávallt legið í góðri og persónulegri þjónustu samhliða vandaðri íslenskri framleiðslu.






