Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?
Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"
Fortjöld
Fortjöld á bíla, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla njóta mikilla vinsælda meðal ferðafólks. Fortjöldin auka verulega við rými og notagildi vagnsins eða bílsins sem skilar sér í meiri ferðagleði og þægindum.
Á saumastofu Seglagerðarinnar eru framleidd fortjöld í öllum stærðum og gerðum. Einnig hefur Seglagerðin flutt inn tvær tegundir af fortjöldum á bíla og Walker fortjöld á hjólhýsi.
- Ægis fortjöldin eru íslensk hönnun en framleidd í portúgal.
- Við eigum fortjöld á flestar gerðir af fellihýsum.
- Tjaldið er úr vönduðum bómullardúk og plastefnum sem standast vel íslenskt veðurfar.
- Fortjöldin eru rúmgóð og þægileg framlenging á hýsunum.
- Fortjöldin eru sérhönnuð fyrir amerísku fellihýsin og framleidd af Seglagerðinni Ægi (og þau ein sinnar tegundar á landinu).