Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?
Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"

Omnistor skyggnin eða markísurnar eru mjög vandaðar og hafa sannað sig vel við íslenskar aðstæður. Skyggnin eru snyrtileg í útliti og falla vel að nýjum vögnum og bílum. Box er utan um dúkinn og lokast það alveg þegar skyggnið er dregið inn.
Öll notkun er einstaklega þægileg, eingöngu þarf að skrúfa skyggnið út og setja niður stoðsúlurnar að framan. Á örfáum sekúndum er því komið gott skjól fyrir framan vagninn.
Hægt er að kaupa hliðar á Omnistor skyggnin til að auka enn frekar skjólið sem þau veita. Auðvelt er að hengja hliðarnar á og myndast þá glæsilegt fortjald fyrir framan bílinn eða vagninn. Þetta er skemmtilegur valmöguleiki og gefur fólki færi á að stýra notkuninni eftir hvað hentar hverju sinni. Hliðarnar eru þrjár, tvö hliðarstykki og eitt að framan.