Heim

EINFALDUR OG FLJÓTUR Í UPPSETNINGU.

Við hjá Seglagerðinni höfum sérhannað Tjaldvagn - ÆGIR til að standast íslenskar aðstæður. Vagninn er allur byggður á viðhaldslausu, höggþolnu trefjaplasti með sterkbyggða galvaniseraða stálgrind með AL-CO öxul, sem gerir honum kleift að fara nánast hvert á land sem er. V-laga beysli og öflugum 13" dekkjum. Vagninn er sérhækkaður til að auðvelda akstur á ósléttum og erfiðum vegum og er léttur þannig að hann er þægilegur í drætti. Þykkur TEN CATE bómullardúkur (340gr) og tvöfaldur dúkur í lofti gerir hann hlýrri og notalegri. Vagninn er með styrktar súlur á öllum hornum sem gerir hann stöðugari (og sterkb). Gott geymslurými er bæði í vagninum og á geymslugrindinni.  Ægisvagninn er tjaldvagn sem er byggður að grunni til úr gamalli hönnun í sambandi við tjöldun en hefur verið endurbættur og hannaður að hluta til uppá nýtt til að standast sem best Íslenskar aðstæður. Notaður er 340 gr TEN CATE vatnsheldur bómullardúkur sem Seglagerðin Ægir hefur notað í yfir 20 ár og þykir leiðandi á sínu sviði í heiminum í dag, og er allur saumaskapur og frágangur á vagninum sérhannaður af sérfræðingi hjá Seglagerðinni Ægi.

     

   
Ægisvagninn er þannig hannaður að hann er mjög auðveldur í tjöldun en það tekur aðeins um 10 til 15 sekúndur að tjalda honum án nokkurra áreynslu. Honum er velt yfir á hlið og nýtist þá lokið sem gólf fyrir framan svefnaðstöðuna sem að er í boxinu sjálfu og einnig er innbyggð setuaðstaða fyrir fjóra. Kassinn samanstendur af tveimur trefjaplastsskeljum (kassi og lok) sem lokast þannig að erfitt er fyrir ryk eða vatn að komast inn. Allur kassinn er úr níðsterku trefjaplasti sem gerir það að verkum að hann er mun endingarbetri en krossviðurinn sem vanalegast er notaður og algerlega viðhaldsfrír (fúnar t.d. ekki) auk þess sem gólfið verður mun stöðugra úr trefjaplasti en ella.

Gluggatjöld eru fyrir öllum gluggum Ægisvagnsins og í svefnrými eru svefntjöld sem skipta því í tvö hólf sem þó er hægt að opna á milli og breyta í eitt stórt. Fyrir framan svefnrýmið hangir bómullarstykki með vösum á sem nýtast vel sem geymslurými undir allskyns smáhluti.

Mjög góð farangursgeymsla er í Ægisvagninum, en reiknað er með að þú eigir að koma öllum þínum útilegubúnaði í vagninn og jafnvel meiru til.  Undir svefnaðstöðunni opnast mjög rúmgott geymsluhólf auk þess sem hægt er að raða miklu magni af farangri í svefnaðstöðuna sjálfa. Einnig geta þeir sem fá sér yfirbreiðslu nýtt sér hina djúpu farangursgrind sem er á vagninum sem geymslurými því hún varnar því að ryk og bleyta komist þar að. Allt þetta geymslurými gerir það verkum að hægt er að hafa allan útbúnað tilbúin í vagninum þannig að fjölskyldan þarf ekki langan undirbúningstíma til að skella sér í skemmtilega útilegu saman, og ekki tekur jafn langan tíma að ganga frá.

Ægisvagninn læsist þegar að hann er niðursettur með tveimur læsingum á hlið vagnsins, auk þess sem hægt er að læsa honum í beislinu þannig að lykil þurfi til að festa hann á bíl. Hægt er að setja vagninn uppá hlið til að minna fari fyrir honum í geymslu og mjög einfalt er að færa hann til, einnig er hægt að taka bæði beisli og fjöðrunarbúnað undan vagninum til að minna fari fyrir honum.

Ægisvagninn er með FJÓRAR stuðningslappir, eina undir hverju horni auk þess að standa á nefhjóli að framan þannig að segja má að hann standi á fimm löppum.

Ægisvagninn er hentugur bæði fyrir þá sem hafa hugsað sér að stoppa í stuttan tíma á hverjum stað og þá sem ætla að vera í lengri tíma á hverjum stað fyrir sig. Ef að stoppað er í styttri tíma er nóg að opna bara vagninn og fá góða svefnaðstöðu og íveruaðstöðu þar fyrir framan. Ef að hins vegar á að stoppa í lengri tíma á hverjum stað er hægt að fá fortjald við vagninn sem að einfalt er að setja upp og eykur plássið gífurlega.

 
ÆGIS TJALDVAGN
ÆGIS FORTJALD 
YFIRBREIÐSLA Á ÆGISTJALDVAGN 
KASSI Á BEISLI 
GRJÓTGRIND 

TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Lengd með beisli:  3,55 m 
Lengd kassa: 2,40 m 
Breidd kassa:  1,71 m 
Eigin þyngd: 240 kg 
Heildarþyngd: 450 kg

 



Seglagerðin Ægir - Eyjarslóð 5, 101 Reykjavík - Sími: 511 2200 - Fax: 511 2211 - seglagerdin@seglagerdin.is

Seglagerðin Ægir áskilur sér rétt til að breyta öllum verðum og skilmálum án fyrirvara