EINFALDUR OG FLJÓTUR Í UPPSETNINGU 2-3 manna tjaldvagn
FORLI TJALDVAGN
FORLI FORTJALD
Veldu vagn sem hentar þínu ferðalagi. Veldu Holiday Camp Forli tjaldvagn.
Vagninn er allur byggður á viðhaldslausu, höggþolnu trefjaplasti með sterkbyggða galvaniseraða stálgrind og AL-CO 450 kg. öxul,
8" dekkjum. Vagninn er mjög léttur og þægilegur í drætti og er einkum léttur í allri meðhöndlun. Þykkur TEN CATE bómullardúkur og tvöfaldur dúkur í lofti gerir hann hlýrri og notalegri. Geymslurými er bæði inni í vagninum og á geymslugrindinni. Auðvelt er fyrir eina manneskju að setja hann upp.





Fyrir þá sem vilja hafa góða svefnaðstöðu í fríinu og aðstöðu til að sitja og borða inni við, en samt að hafa eins léttan og þægilegan vagn í tjöldun og eftirdragi og völ er á eru að leita sér að HOLI day CAMP Forli.
Holi day camp Forli tjaldvagninn er með góðri svefnaðstöðu fyrir 2 til 3 og góðu plássi með hörðu gólfi þar fyrir framan. Geymslurými er í vagninum, hægt er að setja farangur í svefnaðstöðuna sjálfa. Ef fólk hefur yfirbreiðslu er hægt að nota farangursgrind ofan á vagninum sem geymslurými.
Mjög einföld uppsetning er á Holiday camp Forly, en hann tjaldast á innan við 15 sek. Vagninum er einfaldlega velt til hliðar og þá er hann tilbúinn til notkunar og eru engin átök við það að tjalda honum. Það er mjög þægilegt að færa vagninn til þegar að hann er niðursettur því hann kemur með nefhjóli þannig að hægt er að ýta honum til og frá eins og hjólbörum án teljandi erfiðleika, því vagninn er einungis um 160 kg.
Allur kassinn á Forli vagninum er byggður úr viðhaldslausu og höggþolnu trefjaplasti sem helst alltaf eins og nýtt. Undirvagninn er allur galvanaseraður þannig að hann ryðgar ekki og er með Þýskum AL-CO öxli.
Á Holi day camp Forli er notaður níðsterkur, vatnsheldur bómullardúkur frá TEN-CATE í Hollandi, en hann þykir leiðandi á sínu sviði í heiminum í dag og er eini bómullardúkurinn sem Seglagerðin Ægir notar eftir áralanga reynslu. Til að halda dúknum uppi eru þrír súlubogar sem tjaldast sjálfkrafa með vagninum.
Einfalt er að geyma Forli vagninn, en hægt er að velta honum upp á hlið og taka beislið og hjólin undan þannig að minna fari fyrir honum í geymslu og einfalt er að færa hann til.
FORLI TJALDVAGN
FORLI FORTJALD
Tæknilegar uppl.
Breidd: 148cm
Lengd m/beisli: 314cm
Hæð lokaður: 86cm
Eigin þyngd: 160kg