Heim

Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?

Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"




COMBI-CAMP COUNTRY

country_1

Ef þú vilt fylgjast með nýjungum í útilegubúnaði og aðhyllist þægilegan lífsstíl þá er nýi Combi-Camp Country tjaldvagninn einmitt handa þér.
Stór 14" dekk á glæsilegum álfelgum og náttúrulitir á tjalddúknum gefa til kynna að þar fari á ferð ævintýragjarn náttúrudýrkandi sem kýs frelsi, þægindi og munað.
Hvers vegna að veltast um jörðina á fjórum fótum þegar þú getur stigið inn í Combi-Camp vagninn þinn, matreitt dýrindis máltíð í eldhúsinu og sofið í þægilegu rúmi?
Combi-Camp Country er lúxusvagninn fyrir fólk í ævintýraleit.

Njóttu náttúrunnar í stúkusæti
  • 14" dekk og álfelgur
  • Hólf að framan fyrir aukafarangur
  • Fullbúið eldhús
  • Fast gólf
  • 265 l farangurshólf
  • Hægt að tjalda án þess að nota hæla
Tæknilegar upplýsingar

  • Undirvagn:ALKO öxull, 14 tommu felgur, öryggisbremsa, dráttarbeisli, beislishjól, kúlufesting, höggdeyfar, varahjól og handsveif fyrir standarana tvo með snúningsási.
  • Ljós E-merkt ljós og 13-póla tengi til að tengja við bíl.
  • Vagn 8,3 fermetra vagntjald gert úr 290 gramma gagnvörðum bómullardúk, hjónarúm með rimlabotni, innbyggt 265 lítra farangursrými, geymsluvasar og gólfteppi.
  • Geymslurými á beisli Læst rými fyrir léttan 5 kg gaskút og 12 l vatnskút, sem fylgir með. Að auki er rými fyrir svolítinn farangur, framlengingarsnúru o.fl.
  • Fortjald 3,5 fermetra eldhússóltjald, 7,5 fermetra sóltjald og 13,5 fermetra fortjald úr 290 gramma bómullardúk, innbyggðar galvaniseraðar stangir sem hægt er að draga út, skjólhlíf fyrir eldhús, tjaldhælar o.fl.
    country_technical_overview_1
    Eldhús
    Fullkomið lúxuseldhús með ryðfríu eldhúsborði og 3 gashellum. Innbyggður vaskur með vatnsdælu/krana sem knúin(n) er með 12 volta rafgeymi, 35 lítra kælibox fyrir 12V, 230V eða gas, hagkvæm eldhúshilla, 4 stórar skúffur og geymslurými fyrir ýmiss konar eldhúsáhöld.
    country_kitchen_1

Verðskrá

  • Combi-camp m/eldhúsi og fortjaldi 1.950.000,-
  • Combi-camp m/fortjaldi 1.690.000,-
  • Yfirbreiðsla á vagn 36.900,-
  • Yfirbreiðsla á eldhús 18.900,-
  • Grjótgrind 35.900,-

Skoða uppsetningu á vagninum



Seglagerðin Ægir - Eyjarslóð 5, 101 Reykjavík - Sími: 511 2200 - Fax: 511 2211 - seglagerdin@seglagerdin.is

Seglagerðin Ægir áskilur sér rétt til að breyta öllum verðum og skilmálum án fyrirvara