Heim

Ert þú að sækja eitthvað sérstakt?

Skrifaðu hér undir það sem þú ert að sækja og smelltu "Leit"




COMBI-CAMP VALLEY

valley_vagn
Combi-Camp Valley myndar fullkomna umgjörð um fjölskyldufríið. Fjölskyldan er í nánu sambandi við náttúruna en getur um leið notið þæginda eins og fullbúins eldhúss, setustofu og svefnherbergis fyrir foreldrana. Að sjálfsögðu hafa börnin líka sitt eigið herbergi. Allir geta slakað á í Combi-Camp og fríið verður minnisstæðara fyrir vikið. Auðvelt er að keyra með vagninn og það er fljótlegt að setja hann upp og taka hann niður. Notalegar stundir í sólinni og kvöldverður í fortjaldinu skilja eftir sig hlýjar minningar. Að morgni vaknar fjölskyldan við fuglasöng og léttan leik vindsins við tjalddúkinn. Svona á fríið að vera.

  • Fæst með tvenns konar innréttingum
  • Fullbúið eldhús
  • Fast gólf
  • 265 l farangurshólf
  • Hægt að tjalda án þess að nota hæla


8,3 fermetra tjaldvagn gerður úr 290 gramma gagnvörðum bómullardúk, með tveimur svefnrýmum með dýnum og innbyggðum sófa (stöðluð innrétting), innbyggt 265 lítra farangursrými, geymsluvasar og gólfteppi.
valley_technical_overview_1
Eldhús
Fullkomið lúxuseldhús með ryðfríu eldhúsborði og 3 gashellum. Innbyggður vaskur með vatnsdælu/krana sem knúin(n) er með 12 volta rafgeymi, 35 lítra kælibox fyrir 12V, 230V eða gas, hagkvæm eldhúshilla, 4 stórar skúffur og geymslurými fyrir ýmiss konar eldhúsáhöld.
valley_kitchen_1

     Verðskrá

  • Combi-camp m/eldhúsi og fortjaldi 1.950.000,-
  • Combi-camp m/fortjaldi 1.690.000,-
  • Yfirbreiðsla á vagn 36.900,-
  • Yfirbreiðsla á eldhús 18.900,-
  • Grjótgrind 35.900,-

Skoða uppsetningu á vagninum



Seglagerðin Ægir - Eyjarslóð 5, 101 Reykjavík - Sími: 511 2200 - Fax: 511 2211 - seglagerdin@seglagerdin.is

Seglagerðin Ægir áskilur sér rétt til að breyta öllum verðum og skilmálum án fyrirvara