Reglur um leigubúnað

-Leigutaki ber fulla ábyrgð á umgengni og leigubúanð á leigutíma.

-Leigutaki skuldbindur sig til að bæta tjón sem verða kann á leigubúnaði á leigutíma. Þá skiptir ekki máli hvort hann setji búnaðinn sjálfur upp eða fái aðstoð leiguaðila.

-Dagleiga er leiga í einn dag á tímabilinu frá mánudegi til föstudags.

-Helgarleiga er leiga frá umsömdum tíma á föstudegi og skilað á mánudagsmorgni.

-Ganga þarf frá greiðslu um leið og leigubúnaður er sóttur.

-Leigutaki þarf að leggja fram greiðslukortanúmer sem tryggingu fyrir mögulegu tjóni á leigubúnaði á meðan leigubúnaður er í leigutakans umsjá eða töfum á skilum leigutaka eftir umsamin leigutíma.

-Leigutaki skuldbindur sig til að skila leigubúnaði strax eftir umsamin leigutíma í hendur starfsmanna seglagerðarinnar Ægis að eyjarslóð 7. Að öðrum kosti getur Seglagerðin innheimt sektir vegna tafa eða rangrar staðsetningar á skilum leigubúnaðar.

-Leigutaki skuldbindur sig til að skila leigubúnaði hreinum að leigutíma loknum. Að öðrum kosti mun Seglagerðin innheimta þrifagjald af því kortanúmeri sem gefið er upp fyrir tryggingu frá leigutaka.